Aðalvalmynd

Auglýsing

Hver er Geðblær

Ég heiti Pálína Hildur Sigurðardóttir og langar að vekja athygli á málefnum þeirra sem kljást við geðræn vandamál og aðstandendur þeirra. Ég hef verið tengiliður Geðhjálpar við Suðurnesin sl. 2 ár og mun mikið af því efni sem birtist hér koma frá þeim. Einnig mun ég vekja athygli á þeirri starfsemi sem í boði er á Suðurnesjum á þessari síðu.
Ef þú vilt hafa samband við mig getur þú gert það með því að senda mér póst á netfangið Gedhjalp.Sudurnes@gmail.com

Björgin

Athvarf fyrir geðfatlaða
Fitjabraut 6c, 260 Reykjanesbæ
Sími 421 1806

Opnunartími:
Mánudaga - föstudaga 10 - 15:00
Forstöðumaður: Ragnheiður Sif Gunnarsdóttir.

Björg - athvarf fyrir geðfatlaða var opnað 28. janúar 2005 og er það samstarfsverkefni Fjölskyldu- og félagsþjónustu, Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi og Sjálfsbjargar á Suðurnesjum.

Markmið athvarfsins er að efla sjálfstæði fólks með geðræn vandamál og auka samfélagsþátttöku þeirra.

Viðskiptavinum er ætlað að taka virkan þátt í matseld og þrifum á húsnæði og greiða hádegismálsverðinn niður með þeirri vinnu og er því kostnaðurinn 100 kr. á dag.


Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Laugardaginn 29. mars 2008, var haldinn aðalfundur Geðhjálpar.

31. mars 2008 klukkan 12:57


Dagskráin var hefðbundin, aðalfundarstörf í samræmi við 5. grein laga Geðhjálpar, en síðan var gengið til kosninga um fjóra stjórnarmenn í aðalstjórn Geðhjálpar. Stjórnarmenn eru að jafnaði kosnir til tveggja ára í senn og enginn getur setið lengur en sex ár samfleytt.

Þau sem létu af störfum nú eftir sex farsæl ár, voru Erna Arngrímsdóttir varaformaður og Hallgrímur Þór Hinriksson aðalstjórnarmaður. Félagið þakkar þeim vel unnin störf.


Fundarmenn gátu valið fjóra af sjö sem í framboði voru. Þeir sem náðu kjöri og eru því rétt kjörnir til setu í aðalstjórn félagsins voru; Vala Lárusdóttir, Sigursteinn R. Másson og Birna Dís Vilbertsdóttir, öll til tveggja ára og til eins árs Sigurður Þ. Þórðarson sem setið hefur í stjórn undanfarin fimm ár.


Geðhjálp býður nýja stjórnarmenn velkomna 


Borin var upp svohljóðandi tillaga stjórnar Geðhjálpar:


Aðalfundur Geðhjálpar felur stjórn félagsins að ræða samband félagsins við Öryrkjabandalag Íslands - ÖBÍ

Leggi stjórnin til úrsögn úr ÖBÍ, skal sú tillaga lögð fyrir félagsfund Geðhjálpar til samþykktar eða synjunar.


Tillagan var samþykkt einróma.

Lífsreynslan og bataferlið

07. mars 2008 klukkan 13:08

Opinn fundur um geðheilbrigðismál í Reykjanesbæ
 
Þann 18.mars 2008 kl. 20:00  

Sigursteinn Másson ræðir um geðhvörf og það sem mestu máli skiptir í bataferli. 
 

Claire Dickens fjallar um reynslu sína og nýútkomna bók hennar og sonar hennar Titusar Dickens.
 

Eggert Sigurðsson upplýsingafulltrúi Geðhjálpar ræðir um framtíðarsýn Landssamtakanna Geðhjálpar.
  

Umræður og kaffiveitingar

Aðalfundur Geðhjálpar

07. mars 2008 klukkan 07:59
Aðalfundur Geðhjálpar árið 2008 verður haldinn á Túngötu 7, Reykjavík, laugardaginn 29. mars n.k. og hefst kl. 14:00. 

DAGSKRÁ: 

  • Aðalfundarstörf í samræmi við 5. gr. laga Geðhjálpar.
 
  • Kjör fjögurra stjórnarmanna af 7 fer fram til eins og tveggja ára í stað þeirra er hætt hafa eða ljúka stjórnunarstörfum á árinu. Jafnframt fer fram kjör tveggja skoðunarmanna ársreikninga til eins árs.
 
  • Staða Geðhjálpar gagnvart Öryrkjabandalagi Íslands.
 Tillögur um framboð skulu berast skrifstofu Geðhjálpar í síðasta lagi viku fyrir aðalfund. Vísast jafnframt í 3. gr. laga félagsins þar sem segir: “Félagar geta orðið allir þeir einstaklingar er áhuga hafa á og styðja vilja tilgang félagsins. Kosningarétt og kjörgengi í félaginu hafa fullgildir félagsmenn. Fullgildir félagsmenn teljast þeir er skráðir hafa verið í félagið mánuði fyrir aðalfund”. 

Þeir félagar sem enn eiga ógreidd félagsgjöld eru hvattir til að greiða þau fyrir fundinn. Ef greiðsluseðlar eru glataðir, skal bent á að inna má greiðslu af hendi í gegnum heimabanka á netinu, næsta banka, sparisjóði eða pósthúsi inn á reikning Geðhjálpar nr.: 135-26-11801, kt. 531180-0469.
 Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Geðhjálpar, Túngötu 7, 101 Reykjavík í síma 570 1700. 

Félagsmenn eru eindregið hvattir til að mæta. Kaffiveitingar að loknum fundi.  

Virðingarfyllst,Stjórn Geðhjálpar.

Rauði Kross Íslands stendur fyrir fræðslu

03. mars 2008 klukkan 15:32

Sjálfshjálparhópar; kostir og gallar

-til hvers, fyrir hverja, hvernig á að halda hópnum starfandi?

Miðvikudaginn 12. mars, kl. 18:30-21:30
Húsnæði Rauða krossins  að Aðalgötu 10b Sauðárkróki
Geðheilsa skiptir máli
Fræðsla - handleiðsla - umræður

Hefur þú áhuga á að starfa í sjálfshjálparhópi?
Komdu og kynntu þér málin hjá
Rauða krossinum miðvikudaginn 12. mars kl. 18.30 í húsnæði Skagafjarðardeildar að Aðalgötu 10b, Sauðárkróki
Á fundinn mæta
    Helga G. Halldórsdóttir sviðstjóri hjá  Rauða krossinum
    Einar Guðmundsson geðlæknir
    Margrét Ómarsdóttir formaður Barnageðs
    Hallfríður Eysteinsdóttir frá Geðhjálp
Skráning f. 10. mars á netf.
gudnybj@redcross.is Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það eða s. 465 2428


Fræðsla/handleiðsla
Sjálfshjálparhópar; kostir og gallar
-til hvers, fyrir hverja, hvernig á að halda hópnum starfandi?

Miðvikudaginn 12. mars, kl. 18:30-21:30
Húsnæði Rauða krossins  að Aðalgötu 10b Sauðárkróki


Undanfarin ár hefur Rauði krossinn staðið fyrir námskeiðum fyrir fólk með geðraskanir, aðstandendur þeirra og áhugafólk um geðheilbrigðismál um allt land.  Í kjölfarið hafa verið stofnaðir sjálfshjálparhópar fólks með geðraskanir og einnig meðal aðstandenda. 
Það getur reynst erfitt að halda sjálfshjálparhópum starfandi og vitað er um hópa sem byrjuðu vel en lognuðust svo út af og hættu.  Öðrum hópum hefur vegnað vel og eru enn starfandi.

Nú hefur Rauði krossinn ákveðið að bjóða upp á fræðslu/handleiðslu um hvernig best er að halda sjálfshjálparhóp virkum og „lifandi“.  Samstarf er við Barnageð,  Geðhjálp og  fleiri.

Miðvikudaginn 12. mars verður boðið upp á fræðslu-/handleiðslu fyrir alla þá sem eru starfandi í sjálfshjálparhópum, hafa einhvern tímann verið í slíkum hópi en hafa hætt og langar til að byrja aftur og fyrir alla þá sem aldrei hafa tekið þátt í starfi hópa en langar til að taka þátt.
 
Einar Guðmundsson geðlæknir, mun fara í gegnum þau atriði sem helst skipta máli í starfi og virkni hópa. 
Leitast verður við, að fá viðbrögð gesta og reynslusögur þeirra sem starfað hafa í hópum.  Áhersla verður lögð á að finna út hvað það er sem skiptir máli í starfi sjálfshjálparhópa og hvað það er sem heldur hópi lifandi.

Þessi fræðsla/handleiðslufundur verður auglýstur opinberlega og einnig verður öllum einstaklingum boðið sem sótt hafa námskeið Rauða krossins á undanförnum árum ásamt öðrum sem taka þátt í eða hafa áhuga á að taka þátt í starfi sjálfshjálparhópa.  Má þar nefna fólk sem hefur hist á vegum Geðhjálpar og Hugarafls.

Tengiliðir/hópstjórar sjálfshjálparhópa eru sérstaklega hvattir til að mæta og hvetja þátttakendur í sjálfshjálparhópunum til að koma líka.


Það fólk sem hefur reynslu af að starfa í hóp er beðið um að hafa í huga fyrir fundinn er eftirfarandi:
•    Hversu margir byrjuðu í hópnum?
•    Hversu margir hafa hætt?
•    Hvað er erfiðast í starfinu?
•    Hvað hefur reynst vel?
•    Hvernig á að hlúa að sjálfshjálparhópum?
•    Hvernig hefur fræðslunámskeið Rauða krossins og handbók Geðhjálpar nýst í starfinu


Dagskrá kvöldsins verður eftirfarandi:

1.    Inngangur og kynning.  Helga G. Halldórsdóttir, sviðstjóri innanlandssviðs Rauða kross Íslands

2.    Sjálfshjálparhópar, hvernig á að viðhalda starfinu.
     Umsjón   Einar Guðmundsson, geðlæknir

-    Innlegg
-    Umræður, reynsla hópa og/eða einstaklinga
    
Margrét Ómarsdóttir formaður Barnageðs og Hallfríður Eysteinsdóttir frá Geðhjálp veita ráðgjöf og svara fyrirspurnum að umræðum loknum.

               -    Hressing í boði

Það er von okkar að sem flestir sem áhuga hafa sjái sér fært að mæta.

Til þess að hafa einhverja hugmynd um fjölda þátttakenda biðjum við fólk vinsamlegast að skrá sig fyrir 10. mars á netfangið:
gudnybj@redcross.is Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það   í síma 465 2428

Framundan hjá Geðhjálp

03. mars 2008 klukkan 15:30


Það er margt spennandi framundan hjá Geðhjálp á næstunni.


Ø       Laugardagur, 15. mars 2008, kl. 14:00 – Túngata 7.


Fræðslu- og kynningarfundur – „Ríkir stefnuleysi í geðheilbrigðismálum?“

Hugleiðingar um stefnu/ stefnuleysi stjórnvalda og geðsviðs Landspítala háskólasjúkrahúss.
Fyrirlesari: Kristófer Þorleifsson, geðlæknir  Umræður að loknum fyrirlestri.  

  Ø      
Laugardagur, 29. mars 2008, kl. 14:00 – Túngata 7.

Aðalfundur Geðhjálpar.
 ·         Aðalfundarstörf í samræmi við 5. gr. laga Geðhjálpar. 
 
·         Kjör fjögurra stjórnarmanna af 7 fer fram til tveggja ára í stað þeirra er hætt hafa eða ljúka stjórnunarstörfum á árinu.     Jafnframt fer fram kjör tveggja skoðunarmanna ársreikninga til eins árs.
 
  ·         Staða Geðhjálpar gagnvart Öryrkjabandalagi Íslands. 
 

Ø      
Laugardagur, 5. apríl 2008, kl. 14:00 – Tjarnarsalurinn í Ráðhúsi Reykjavíkur. 

Borgarafundur á vegum Geðhjálpar - Fordómar

Fyrirlesarar: Róbert H. Haraldsson, dósent í heimspeki við Háskóla Íslands og Sigurður Þór Guðjónsson, rithöfundur
Fyrirspurnum svarað úr sal að loknum fyrirlestrum.

Okkar mál – Blað Geðhjálpar.

Útgáfa og dreifing 10. tbl. blaðs Geðhjálpar með blaðinu; 24 stundir um land allt.
 

 
Ø       Laugardagur, 12. apríl 2008, kl. 14:00 – Túngata 7. 


Kynningarfundur Klúbbsins Geysi á starfsemi þeirra.



Félagar í Geðhjálp og áhugafólk er eindregið hvatt til að mæta.
Kaffiveitingar að loknum fræðslu- og félagsfundum hjá Geðhjálp

OA ráðstefna 12 - 13 október

11. október 2007 klukkan 11:04

Föstudagskvöldið 12. og laugardaginn 13. október verður haldin OA ráðstefna í safnaðarheimili Seljakirkju, Hagaseli 40, 109 Reykjavík. Hingað kemur reyndur OA félagi frá Baltimore til að miðla okkur af reynslu sinni.  

Ráðstefnan er opin öllum matarfíklum, jafnt virkum OA félögum sem nýliðum, en fundurinn milli 20:30 og 22:00 á föstudagskvöldinu er einnig opinn fyrir aðstandendur og aðra sem hafa áhuga á að kynna sér OA samtökin. 
  

OA samtökin (Overeaters Anonymous) eru samtök fólks sem á við sameiginlegt vandamál að stríða, matarfíkn, sem á sér ýmsar birtingarmyndir. Við tökumst á við vandamálið einn dag í einu og vinnum eftir 12 spora kerfi til að ná bata við matarfíkninni.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu OA samtakanna á Íslandi: www.oa.is 

Geðheilbrigði í breyttum heimi

03. október 2007 klukkan 08:42

Dagana 7 og 10 október næstkomandi verður Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn haldinn hátíðlegur með veglegri dagskrá í Nautólfsvík, Perlunni, Ráðhúsinu og í Hallgrímskirkju. Yfirskrift dagsins í ár er: Geðheilbrigði í breyttum heimi: Áhrif menningar og margbreytileika. Yfirskriftin tengist m.a. þeirri mikilvægu spurningu með hvaða hætti íslenskt samfélag mætir þörfum stækkandi hóps Íslendinga af erlendum uppruna fyrir geðheilbrigðisþjónustu.

Fjölbreytt dagskrá í Perlunni
Sunnudaginn 7 október hefst dagkráin með hinu árlega geðhlaupi og geðsundi í Nautólfsvík. Að því loknu verður skemmtidagskrá í Perlunni sem í samræmi við yfirskrift dagsins verður með fjölmenningarlegu sniði. Dagskráin hefst kl.14:00 með opnun myndlistasýningar og kynningu á úrræðum sem stuðla að geðheilbrigði Þá munu Vigdís Finnbogadóttir og Þráinn Bertelsson, flytja ávörp og Regbogakórinn, jazztríóið Tríótó og fleiri aðilar skemmta.. Kynnir verður Valgeir Guðjónsson. Að skemmtidagskrá lokinni verður efnt til skákmóts og er þáttaka ókeypis og öllum heimil. Um kvöldið er ráðgert að halda flugeldasýningu við Perluna undir yfirskriftinni, “fordómunum skotið upp”.

Þverfagleg ráðstefna í Ráðhúsi Reykjavíkur
Miðvikudaginn 10 október verður síðan efnt til þverfaglegrar ráðstefnu í Ráðhúsi Reykjavíkur sem ber yfirskriftina “Innflytjendur og geðheilbrigði.” Hlutfall innflytjenda er stöðugt að aukast og í desember 2006 voru 8,1% íslensku þjóðarinnar innflytjendur en þeir voru 2,8% þjóðarinnar fyrir 10 árum. Tölulegar upplýsingar frá öðrum löndum í Evrópu benda til þess að hlutfall geðraskana sé hærra meðal innflytjenda en annarra auk þess sem ungumálaörðugleikar og annar menningarlegur munur hefur reynst torvelda innflytjendum að leita sér hjálpar. Á ráðstefnunni í Ráðhúsinu verður leitast við að bregða ljósi á ólíka þætti sem tengjast innflytjendum og geðheilbrigði. Meðal fyrirlesara er Diane Bass frá Bretlandi, sérfræðingur í áhrifum menningar á viðtalsmeðferð. Meðal annarra sem halda erindi er fulltrúi innflytjenda, túlkur og heimspekingur. Að kvöldi 10 október verður  minningarguðsþjónusta um fórnarlömb sjálfsvíga, Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur við athöfnina en að henni lokinni verður gengið fylktu liði niður að Tjörn þar sem kertum verður fleytt.

Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn - Lykill að lífi

03. október 2007 klukkan 08:39

Landssöfnun Kiwanis-hreyfingarinnar til stuðnings geðsjúkum og aðstandendum þeirra hefst fimmtudaginn 4. október og stendur til og með sunnudeginum 7. október. Sparisjóðirnir á Íslandi, Toyota, Olís og Bónus eru bakhjarlar verkefnisins. Kjörorð söfnunarinnar er Lykill að lífi og er hún haldin í tengslum við alþjóðlega geðheilbrigðisdaginn 10. október.  

Ágóði landssöfnunarinnar að þessu sinni rennur til þriggja málefna; Geðhjálpar, BUGL og Forma. Gengið verður í hús um land allt, sölumenn verða við verslunarmiðstöðvar og aðra fjölfarna staði, auk þess sem leitað er til fyrirtækja um stuðning. Sparisjóðirnir á Íslandi eru fjárvörsluaðili söfnunarinnar og má leggja málefninu lið með því að fara inn á heimabanka sparisjóðanna og millifæra. Hægt er að leggja inn á reikning söfnunarinnar; 1100-26-55000, kennitala 640173-0179. K-lykillinn verður ennfremur til sölu í öllum verslunum Bónuss og á þjónustustöðvum Olís dagana 4.-7. október. Fyrir safnara er rétt að geta þess að K-lykillinn fæst að þessu sinni í þremur litum; rauðum, bláum og gulum.
 

Kiwanis-hreyfingin á Íslandi hefur allt frá árinu 1974 staðið fyrir landssöfnun þriðja hvert ár með sölu á K-lyklinum. Ágóði af landssöfnununum hefur runnið til fjölda verkefna til hjálpar geðsjúkum. Tilgangurinn er að vekja þjóðina til umhugsunar um málefni geðsjúkra og safna fé til þess að styðja við endurhæfingu þeirra. Að þessu sinni er sjónum sérstaklega beint að ungu fólki sem glímir við geðræn vandamál.
 

Geðhjálp
mun við ráðstöfun síns hluta söfnunarfjárins beina sjónum sérstaklega að ungu fólki á aldrinum 12-25 ára sem á við geðraskanir að etja. Ætlunin er að efla, styrkja og samþætta þau úrræði sem víða eru í boði en eru ekki sem skyldi sýnileg eða aðgengileg, jafnframt því sem leitast verður við að finna úrræði þar sem á skortir. Meðal annars verður komið á fót athvörfum fyrir þá einstaklinga sem einangrast hafa félagslega í samfélaginu vegna geðraskana og haldið áfram að byggja upp sjálfshjálparhópa um allt land.

BUGL hyggst nýta sinn hluta söfnunarfjárins til verkefna sem gera legudeildarsjúklingum kleift að fá þjálfun og afþreyingu utan deildarinnar. M.a. á að endurnýja útileikaðstöðu og auðvelda skjólstæðingum BUGL með ýmsu móti að fá holla hreyfingu og stunda uppbyggilega tómstundaiðju.

Forma mun nýta styrkinn til að efla ráðgjafastarfsemi sína um land allt svo átröskunarsjúklingar eigi auðveldara með að leita sér hjálpar. Einnig verður komið á fót skipulegri forvarnafræðslu í 8. bekk grunnskóla og 1. bekk framhaldsskóla til að sporna við fjölgun átröskunarsjúklinga.

Landsöfnun til stuðnings geðsjúkum

18. september 2007 klukkan 12:52


Sparisjóðirnir á Íslandi, Toyota, Olís og Bónus verða bakhjarlar landssöfnunar Kiwanis-hreyfingarinnar til stuðnings geðsjúkum og aðstandendum þeirra sem fram fer dagana 4.-7. október.


Í fréttatilkynningu kemur fram að kjörorð söfnunarinnar er Lykill að lífi og er hún haldin í tengslum við alþjóðlega geðheilbrigðisdaginn 10. október.


Kiwanis-hreyfingin á Íslandi hefur allt frá árinu 1974 staðið fyrir landssöfnun þriðja hvert ár með sölu á K-lyklinum. Ágóði af landssöfnununum hefur runnið til fjölda verkefna til hjálpar geðsjúkum. Tilgangurinn er að vekja þjóðina til umhugsunar um málefni geðsjúkra og safna fé til þess að styðja við endurhæfingu þeirra. Að þessu sinni er sjónum sérstaklega beint að ungu fólki sem glímir við geðræn vandamál.


Ágóði landssöfnunarinnar að þessu sinni rennur til þriggja málefna; Geðhjálpar, BUGL og Forma. Gengið verður í hús um land allt, sölumenn verða við verslanamiðstöðvar og aðra fjölfarna staði, auk þess sem leitað er til fyrirtækja um stuðning, samkvæmt tilkynningu.

Tekið af mbl.is

Tólf spora starfið í kirkjunni

11. september 2007 klukkan 11:56


Upplifirðu stjórnleysi í lífi þínu og að þú ráðir ekki alltaf við aðstæður?

Hefurðu einhvern tíman velt því fyrir þér að þig langaði til og/eða þú þyrftir á því að halda að skoða lífið þitt - hvert þú stefnir - hverjar tilfinningar þínar eru og hvernig þú getur bætt samskipti þín við annað fólk?

Veistu að TÓLF SPORIN eru kjörið verkfæri til þess arna.

Sjá nánar hér